Verkfærakista

Fsss Sálfélag • March 14, 2026

Share this article

Endurmenntun FSSS: Samskipti

Fræðslunefnd Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga stendur fyrir hagnýta Verkfærakistu um samskipti á vinnustað og í einkalífi sem haldin verður fimmtudaginn 9. apríl kl. 15:00 - 18:00 í Digraneskirkju. Skráning neðst í auglýsingu.


Í þessari verkfærakistu verður farið yfir samskipti út frá tveimur víddum, annars vegar samskipti í vinnu og hins vegar í einkalífinu.


Samskipti í vinnu:

Samskipti eru mikilvægur þáttur í sálfélagslegu vinnuumhverfi. Þegar samskiptavandi myndast getur það haft veruleg áhrif á líðan starfsfólks, teymisvinnu og menningu vinnustaða. Í erindinu verður fjallað um samskipti á vinnustöðum út frá fjórum lykilþáttum sem fagaðilar geta nýtt í starfi þegar unnið er með einstaklingum, teymum eða stjórnendum:

  • Áhættuþættir í samskiptum
  • Samskiptamynstur
  • Greining vanda
  • Inngrip


Markmiðið er að kynna fagaðilum sjónarhorn og hagnýtar aðferðir sem nýtast þegar unnið er með samskipti og ágreining á vinnustöðum.


Samskipti í einkalífi:

Samskipti eru grunnur að tengslum í fjölskyldum og nánum samböndum. Þegar samskiptavandi myndast getur hann haft víðtæk áhrif á líðan einstaklinga og tengsl innan fjölskyldunnar. Í erindinu verður fjallað um samskipti í einkalífi út frá kenningum Murray Bowen um fjölskyldukerfi. Bowen lagði áherslu á að skilja einstaklinga í samhengi við tengsl þeirra við aðra og þau mynstur sem mótast í nánum samskiptum. Fjallað verður um fjóra lykilþætti sem fagaðilar geta nýtt þegar unnið er með einstaklingum, pörum eða fjölskyldum:

  • Tengslakerfi og áhrif þeirra
  • Samskiptamynstur og tilfinningaleg viðbrögð
  • Tengslavandi og endurtekin mynstur
  • Inngrip sem styðja við aukinn skilning og heilbrigðari samskipti


Markmiðið er að veita fagaðilum innsýn í fjölskyldukerfi og samskiptamynstur og kynna aðferðir sem geta nýtast við að skilja og vinna með tengsl í nánum samböndum.


Um fyrirlesara: Ragnhildur Bjarkadóttir er sérfræðingur í vinnuvernd, klínískur sálfræðingur og fjölskyldufræðingur auk þess að vera með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum. Hún er stofnandi Auðnast sem veitir vinnustöðum þjónustu á sviði heilsu og vinnuverndar og rekur jafnframt Auðnast Klíník meðferðarstofu. Ragnhildur hefur sinnt kennslu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Endurmenntun.



Hægt er að fá frekari upplýsingar frá Fræðslunefnd FSSS með tölvupósti fraedslunefnd (a) fsss.is


Skráning á verkfærakistu: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScEk4wUHcRf4yTYgGkU17UsopTAxLDbF07AE5l5pol8QCx0uA/viewform

Recent Posts

By Fsss Sálfélag • April 9, 2026
Árshátíð og aðalfundur
By Fsss Sálfélag • March 21, 2026
Ný lög um rafræna sjúkraskrá taka gildi 1. desember 2026
By Fsss Sálfélag • March 21, 2026
Lög um rafræna sjúkraskrá
By Fsss Sálfélag • March 21, 2026
Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu
By Fsss Sálfélag • March 20, 2026
Mæting og umræður um erindin
By Fsss Sálfélag • March 20, 2026
Sálfræðingaþing 25. - 27. mars
By Fsss Sálfélag • March 20, 2026
Reynslusögur af Virk
By Fsss Sálfélag • March 19, 2026
Hagsmunamál sem stjórni setti sér 30. október 2025
By Fsss Sálfélag • March 19, 2026
Þættir, kvikmyndir og allt þar á milli
By Fsss Sálfélag • March 18, 2026
Þann 8. maí verður haldin árshátíð og aðalfundur. Nánar upplýsingar um staðsetningu og dagskrá er að finna á félagasvæðinu.
Show More