Umræðumál

By Fsss Sálfélag March 20, 2026


Reynslusögur af Virk

Stjórn hefur borist fregnir um starfshætti Virk í tengslum við sálfræðimeðferð og greiningu þar sem félagmenn hafa líst áhyggjum sínum hvernig staðið er að,  þá sérstaklega með kortlagningu (greiningarviðtöl) skjólstæðinga af hálfu Virk og sérstaklega í tengslum við skjólstæðinga sem eru með flókna áfallasögu.


Lýsingar eru á þá vegu að skjólstæðingar, sem eru þá ýmist þegar í meðferð hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingi, eða sálfræðingur að óska eftir fleiri viðtölum fyrir skjólstæðing sem vísað var af Virk, og hafa þá fyrirmæli um að kollvarpa eigi fyrri meðferðaráætlun sálfræðings.

Virðist sem að ákvarðanir byggjast á 50-90 mín. viðtölum sérfræðinga hjá Virk. Veldur þetta vandkvæðum í áframhaldandi meðferðarvinnu og óþægindum.


Höfum við einnig dæmi um að skjólstæðingur megi ekki halda meðferð áfram hjá sálfræðingi en engin rök færð fyrir því annað en að það sé byggt á einu ,,greiningarviðtali" og skuli undirgangast HAM meðferð við flókinni áfallastreitu. Breyti þar engu þótt að sálfræðingar sem sinntu skjólstæðingunum, vinni einnig út frá HAM. Virðist vera lítill skilningur á mikilvægi meðferðarsambands og að hugsanlega þekki sálfræðingurinn sem sinnir meðferðinni skjólstæðinginn betur aðili sem tekur eitt greiningarviðtal.


Stjórn telur mikilvægt að vekja athygli á ofangreindu meðal félagsmanna, kalla eftir umræðum og jafnvel frekari dæmum eða upplýsingum.


Hægt er að upplýsa stjórn eða ræða í trúnaði um einstaka mál. Óski félagsmaður eftir nafnleynd en vill koma upplýsingum áfram, þá getur stjórn útbúið þræði með málefnum og dæmum inn á lokaða spjallsvæðið okkar.

Hægt er að hafa samband við formann FSSS í s. 857-5777 og með tölvupósti soffiaelin@sentia.is  Ef félagsmaður vill frekar ræða við aðra í stjórn, þá er meira en sjálfsagt að leita til þeirra.


SHARE THIS