Sálfræðingaþing

Fsss Sálfélag • March 20, 2026

Share this article

Sálfræðingaþing 25. - 27. mars

Líkt og fyrri ár hefst þingið með fræðsluerindi á miðvikudagskvöldi. Erindið er ætlað almenningi og krefst ekki fyrri þekkingar á sálfræði eða sálfræðimeðferð. Erindið verður flutt af dr. Paul Gilbert, prófessor við háskólann í Derby á Englandi og upphafsmanni samkenndarmiðaðrar sálfræðimeðferðar (Compassion Focused Therapy). 


Á fimmtudeginum 26. mars verða ýmis námskeið og vinnustofur í boði fyrir sálfræðinga. Þar á meðal er vinnustofa með dr .Gilbert sem nefnist "Compassion as an antidote to harsh self-criticism and self-attacking". Sætafjöldi á vinnustofu dr. Gilbert er takmarkaður og félagar í Sálfræðingafélagi Íslands ganga fyrir um skráningu á vinnustofuna. Skráning á vinnustofu dr. Gilbert verður auglýst síðar, sem og aðrar vinnustofur á fimmtudeginum. 

 

Sjálfur ráðstefnudagur Sálfræðiþings er svo föstudaginn 27. mars. Dagskrá dagsins verður með hefðbundnu sniði. Að lokinni afhendingu heiðursverðlauna og nemaverðlauna flytur Paul Gilbert gestafyrirlesari ávarp sitt: The nature and functioning of compassion: An evolutionary and brain state approach. Að erindi hans loknu tekur vísindadagskrá þingsins við með hefðbundnu sniði þar sem sálfræðingar og vísindamenn verða með málstofur, stök erindi og veggspjöld.

 

Sálfræðiþing 2026 er afmælisþing í margvíslegum skilningi. Árið 2001 útskrifaðist fyrsti Cand. Psych. hópurinn frá Háskóla Íslands. Þessir fyrstu sálfræðingar sem luku námi sínu til starfsréttinda á Íslandi eiga því 25 ára starfsafmæli vorið 2026. Fimmtán árum síðar, eða vorið 2016 útskrifaði Háskólinn í Reykjavík svo sálfræðinga í fyrsta sinn. Sá hópurá því 10 ára starfsafmæli nú í vor. Að síðustu vil ég nefna tímamót heilsugæslunnar en á árinu 2016 voru fyrstu yfirsálfræðingarnir ráðnir á heilbrigðisstofnanir sem þá voru nýstofnaðar eftir umfangsmiklar sameiningar í heilsugæslunni. Í kjölfarið tók við mikill uppbyggingartími sálfræðiþjónustu í heilsugæslu sem segja má að eigi nú 10 ára afmæli þó að sálfræðingar hafi áður verið starfandi á einstökum heilsugæslustövðum. Öll hafa þessi tímamót átt stóran þátt í að auka aðgengi almennings að sálfræðiþjónustu. Þessa viljum við minnast á Sálfræðiþingi 2026. Þess vegna eru starfandi sálfræðingar, ekki síst þau sem starfa í heilsugæslu, sérstaklega hvattir til að senda inn efni á þingið.

 

https://salfraedithing.is/skraning

Recent Posts

By Fsss Sálfélag March 21, 2026
Ný lög um rafræna sjúkraskrá taka gildi 1. desember 2026
By Fsss Sálfélag March 21, 2026
Lög um rafræna sjúkraskrá
By Fsss Sálfélag March 21, 2026
Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu
By Fsss Sálfélag March 20, 2026
Mæting og umræður um erindin
By Fsss Sálfélag March 20, 2026
Reynslusögur af Virk
By Fsss Sálfélag March 19, 2026
Hagsmunamál sem stjórni setti sér 30. október 2025
By Fsss Sálfélag March 19, 2026
Þættir, kvikmyndir og allt þar á milli
By Fsss Sálfélag March 18, 2026
Þann 8. maí verður haldin árshátíð og aðalfundur. Nánar upplýsingar um staðsetningu og dagskrá er að finna á félagasvæðinu.
By Fsss Sálfélag March 17, 2026
Allt sem þú ÞARFT að vita um lokaða svæðið okkar!
By Fsss Sálfélag March 14, 2026
Endurmenntun FSSS: Samskipti
Show More