Um FSS
Sálfræði er vísindagrein sem fæst við rannsóknir á fólki, hugsun þess og atferli. Félag sjálfstætt starfandi sálfræðinga hefur það að markmiði að stuðla að þróun, kynningu og hagnýtingu sálfræðinnar almenning til góðs.
Félag sjálfstætt starfandi sálfræðinga er fag- og réttindafélag þeirra sálfræðinga sem starfa sjálfstætt á eigin stofum, í eigin rekstri eða á stofum sem reknar eru af öðrum sjálfstætt starfandi sálfræðingum.
Hlutverk FSS er að vera vettvangur fyrir sjálfstætt starfandi sálfræðinga, að gæta hagsmuna þeirra, efla starfsemi, tengslanet og samvinnu og þannig stuðla að bestu mögulegu sálfræðiþjónustu fyrir almenning.

Hlutverki sínu hyggst félagið gegna með því að:
Vinna að hagsmunamálum sjálfstætt starfandi sálfræðinga
Stuðla að hagnýtri umræðu og fræðslu fyrir sjálfstætt starfandi sálfræðinga og framfylgja endurmenntunarstefnu félagsins
Verða fullgildur aðili að samningum við opinbera aðila í málefnum er varða sjálfstætt starfandi sálfræðinga og hagsmuni skjólstæðinga þeirra
Efla persónuleg kynni sjálfstætt starfandi sálfræðinga, meðal annars með því að stofna til mannfagnaða
Efla tengsl sjálfstætt starfandi sálfræðinga við almenning, sálfræðinema og fagfélagá
Framtíðarsýn FSS
Að vera leiðandi og stefnumótandi í sálfræðilegri meðferð á Íslandi:
Standa vörð um starfssvið sálfræðinga
Vera sýnilegir almenningi og öðrum fagfélögum
Hvetja félagas með til virkrar þátttöku í samfélagsumræðu
Stefnumótandi í geðheilbrigði landsmanna
Stuðla að jafnræðis aðgengi fólks að sálfræðiþjónustu
Hvetja félaga til að vinna eftir klínískum leiðbeiningum er byggja á gagnreyndum aðferðum
Gildi FSS
Fagmennska
Skýr starfshættir, ábyrg þjónusta og gæði í öllu faglegu starfi.
Þekking
Traustur fræðilegur grunnur, stöðug fagleg þróun og gagnreyndar aðferðir.
Samfélag
Samheldið og styrkt tengslanet sjálfstætt starfandi sálfræðinga um land allt.
Endurmenntun
Símenntun, sérhæfing og regluleg uppfærsla á þekkingu í takt við nýjustu rannsóknir.
