|
|
Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara Engjavegi 6 - 104 Reykjavík
Sími 553-1994 - Fax 514-4001 Tölvupóstur: fsss@fsss.is
Formaður FSSS: Haraldur Sæmundsson
Hefur símatíma á Mánudögum kl. 12.00 til 13.30
|
Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara eða FSSS var stofnað árið 1990. Markmið FSSS er að vinna að hagsmunum félagsmanna, stuðla að hagnýtri fræðslu og umræðu sem og að vinna að samskiptum við sjúkraþjálfara erlendis. FSSS er langfjölmennasti samningsaðili sjúkraþjálfara við Tryggingastofnun Ríkisins (HTR)
Stjórn félagsins telur einnig að hlutverk þess felist í að stuðla að aukinni fagmennsku og ábyrgð meðal sjúkraþjálfara. Í þeim tilgangi hafa m.a. verið settar almennar reglur um lágmarks útbúnað sjúkraþjálfara og rafræna skráningu í sjúkraþjálfun. Stjórn FSSS hvetur félagsmenn sína til að efla fagfélag sjúkraþjálfara, FÍSÞ og minnir á að öflugt samstarf sjúkraþjálfara er mjög mikilvægt. Félagsmenn eru um 250. |