Skilmálar félagasvæðisins
Með því að skrá þig samþykkir þú eftirfarandi skilmála fyrir aðgang að félagasvæði FSSS:
Trúnaður:
Allt sem deilt er á félagasvæðinu er trúnaðarmál. Óheimilt er að deila, birta eða vísa til samræðna, gagna eða efnis af svæðinu án leyfis viðkomandi.
Siðareglur:
Félagsmenn skuldbinda sig til að haga sér af kurteisi og virðingu í öllum samskiptum á svæðinu, í samræmi við siðareglur FSSS og Sálfræðingafélags Íslands.
Aðgangur:
Aðgangur að félagasvæðinu er eingöngu ætlaður skráðum félagsmönnum FSSS. Óheimilt er að deila innskráningarupplýsingum með öðrum.
Persónuvernd:
Upplýsingar sem félagsmenn deila á svæðinu eru ekki sýnilegar almenningi og eru eingöngu aðgengilegar öðrum félagsmönnum.
