|
Nánari lýsing:
Menntun: Lauk B.Sc. námi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands 1981. B.Sc. verkefni: mjóbaksverkir - skoðun, einkenni, orsakir. Lauk þriggja ára framhaldsnámi í Manual Therapy í Osló 1991. Lauk 480 stunda framhaldsnámi í nálastungum í Skóla hinna fjögurra árstíða hjá Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur Dipl.Phyt.Lic.Ac. 1997-1998. Þess utan sótt fjölda endurmenntunarnámskeiða hér á landi og erlendis í manual therapy, nálastungum, lasermeðferð, læknisfræðilegri æfingameðferð ( medical exercise therapy ), teipingu, visceral organ manupulation og sundaðferðum Halliwick, samtals 384 stundir. Hefur einnig sótt ýmis þing hér og erlendis m.a. heimsþing IFOMT sem er heimsþing sjúkraþjálfara með framhaldsmenntun í manual therapy. Sjúkraþjálfari B.Sc. MT.Sérfræðingur í greiningu og meðferð á hrygg og útlimaliðum – Manual Therapy.
Starfsferill: Landsspítali 1981-1983. Reykjalundur 1983-1985 Beitostölen helsesportsenter 1985. Hans og Olav fysioterapi í Osló 1985-1986,1989-1991. Aker sykehus 1990, Sjálfsbjörg Reykjavík 1987-1989,1992. Ráðgefandi sjúkraþjálfari á Borgarspítalanum 1993-1997. Er stofnandi MT stofunnar 1993 og hefur unnið þar síðan. Hefur starfað með íslenska kvennalandsliðinu í handknattleik sem sjúkraþjálfari 1987-1990 og 1991-1992 og með Vestar í Osló 1989-1992. Hefur starfað við þjálfun í handknattleik hjá FRAM 1970-1976 og frískþjálfun á MT stofunni 1993-1997 og Gáska 1981-1982. Hefur sinnt kennslu í liðlosun útlimaliða við Háskóla Íslands 1992-1998 og í nuddi 1994-1997. Var verkmenntunarkennari í sjúkraþjálfun við H.Í 1983-1985 og 1987-1989. Hefur verið lokaprófsdómari við Háskóla Íslands 1987-1990. Hefur tekið þátt í “whiplash” rannsókn sem Torfi Magnússon læknir Landsspítala Fossvogi stjórnaði. Hefur ásamt Gunnhildi Ottósdóttur sjúkraþjálfara og Vilmundi Vilhjálmssyni sjúkraþjálfara gert verkefni á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands varðandi heilsuvernd og forvarnir hljómsveitarmeðlima og fylgt því eftir. Hefur á vegum FÍSÞ haldið nokkur námskeið á sviði Manual Therapy og fyrirlestra á sama sviði.
Veffang: www.mtstofan.is
|