Forsíða / Sjúkraþjálfun
| Veftré
Starfsvettvangur
Kvillar og meðhöndlun
Námið
Gjaldskrá
Lög, reglur & samþykktir
Drög af starfsreglum siðanefndar sjúkraþjálfara.
Umsóknir
Lög FSSS
Siðareglur FSSS
Samningur FSSS og Sjúkratrygginga
Lágmarksútb. á sjúkraþjálfunarst.

Alþingi, lagasafn

Samkomulag FSSS og SÍ 2012
Sjúkraþjálfun


Sjúkraþjálfun er starfsgrein á heilbrigðissviði sem byggist á hreyfivísindum en starfsheiti stéttarinnar er verndað samkvæmt lögum. Um er að ræða sérsvið sem aðeins þeir sem hafa tilskilda menntun, réttindi og þekkingu mega veita.

 

Hlutverk sjúkraþjálfara er að greina, meta og meðhöndla truflun á hreyfingum líkamans. Efling á líkamlegu jafnt semandlegu atgervi og stuðlun bættrar líðan er höfuðmarkmið starfsins.  Nánar tiltekið, má segja að meginhlutverk sjúkraþjálfara sé að skilgreina, leiðrétta og bæta misvægi í stoðkerfinu sem getur verið allt frá hreyfiröskun í einstaka liðamótum til stærri áhrifa í stoðkerfinu í heild.  Margir þættir geta valdið röskun í stoðkerfinu, allt frá litlum áverka eða misvægi á einstaka lið til sjúkdóma sem valda alvarlegum og/eða varanlegum áhrifum og því mikilvægt að skoða samspil stoðkerfisins við önnur kerfi líkamans, má þar nefna meltingarkerfið og taugakerfið.  Með því leitast sjúkraþjálfarar við að líta á einstaklinginn í heild sinni og samspil hans við sitt nánasta umhverfi þ.e. athafnir daglegs lífs og vinnuumhverfi. Í þessu samhengi er rætt um stoðkerfið í víðustu merkingu þess hugtaks því meðhöndlun sjúkraþjálfara verður ætíð að vera heildræn nálgun við einstaklinginn.


 

Ýmsir þættir sjúkraþjálfunar
Mjög stór þáttur í starfi sjúkraþjálfara er mat á hreyfiþroska barna og unglinga en hreyfing tengist hreyfiþroska. Einnig fást sjúkraþjálfarar við endurhæfingu og ráðgjöf um líkamsbeitingu og heilbrigði í starfi og frístundum sem og almenna og sérhæfða þjálfun ýmissa hópa s.s hjartasjúklinga mæðraleikfimi og hreyfingu fyrir of þunga einstaklinga.

Sérhæfing á hinum ýmsu sviðum sjúkraþjálfunar hefur færst í aukana. Stór hópur sjúkraþjálfara sem stundar göngudeildarþjónustu hefur sérhæft sig í skoðun og meðhöndlun á hryggjar - og útlimaliðum og einnig hafa sjúkraþjálfar sérhæft sig í greinum eins og barna­sjúkra­þjálfun, hjarta­- og lungnasjúkra­þjálfun, sjúkraþjálfun aldraðra, geðsjúkraþjálfun, íþrótta­sjúkra­þjálfun og sjúkraþjálfun á meðgöngu og eftir barnsburð. Þannig hefur greining á stoðkerfisvandamálum orðið nákvæmari og hafa sjúkraþjálfarar einnig sérhæft sig í aðferðum eins og t.d. hnykkmeðferð og nálastungumeðferð. Allar meðferðir sjúkraþjálfunar byggjast á viðurkenndum vísindalegum aðferðum sem eru í stöðugri þróun. Dæmi um vandamál í stoðkerfi eru mjóbaks-, háls- og axlarvandamál sem geta stafað af slysum, sjúkdómum og/eða óæskilegu álagi á stoðkerfið.

 

 

 

FSSS | Engjavegi 6 104 Reykjav�k | S�mi: 553 1994 | Fax: 514 4001 | fsss@fsss.is