30.12.2004 Ávarp formanns FSSS
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstöðvar hafa sannað tilvist sína svo um munar og eru nú ómissandi þáttur í heilbrigðiskerfinu hér á landi. Sýnir það sig best á öllum þeim tilvísunum sem berast vegna sjúklinga en 10 % þjóðarinnar fara árlega til sjúkraþjálfara.
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstöðvar geta hins vegar tekið við mun fleira fólki. Greinin hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og hefur starfsemi þessara stöðva, sem nú skipta tugum, gert sjúkrahúsunum kleift að útskrifa sjúklinga fyrr en ella vitandi það að við sjúklingum tekur fagfólk sem vinnur markvisst að bata þeirra. Með þessari tilhögun má fullyrða að sjúkraþjálfarar stuðli að gríðarlegri hagræðingu og sparnaði hjá ríkisvaldinu.
Mörg verkefni bíða nýrrar stjórnar FSSS. Á næsta starfsári verður lögð áhersla á að styrkja tilvist sjúkraþjálfara enn frekar með kynningu á starfi þeirra og er stefnan að leita ýmissa leiða í þeim tilgangi. Fyrsta verk stjórnarinnar er að setja á laggirnar nýja og glæsilega heimasíðu. Heimasíðan er ætluð félagsmönnum, almenningi og fjölmiðlum og ljóst er að hún muni gefa félaginu byr undir báða vængi í þeirri kynningu á starfi sjúkraþjálfarans sem þegar er hafin.
Stjórn FSSS leggur á það áherslu að sjúkraþjálfarar notfæri sér allar tiltækar leiðir til að styrkja starfsgrundvöll sinn. Í nútíma upplýsingasamfélagi er mikilvægt fyrir fámennar starfsstéttir að nýta sér vel eigin þekkingu, auka við hana með endurmenntun og nýta sér þekkingu annarra fagstétta.. Skilvirk kynning og sívirk umfjöllun um eðli og umfang fagsins er máttug leið að því marki. Stjórnin telur því mikilvægt að skrif um málefni sem snúa að starfi sjúkraþjálfara ogþátttaka í samfélagslegri umræðu sé jákvæð og faginu og stéttinni til framdráttar.
Samningaviðræður við heilbrigðis- og tryggingastofnun ríkisins standa nú yfir og er það von stjórnar að heimasíðan nýtist í þeirri kjarabaráttu sem framundan er. Það er trú stjórnar að öflug nútíma samskipti og upplýsingatækni geti nýst sjúkraþjálfurum vel.
Stjórn FSSS óskar sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfurum til hamingju með glæsilega heimasíðu.
Með kveðju
Kristján Hj. Ragnarsson formaður « Til baka |