Forsíða / Um FSSS / Lög FSSS
| Veftré
Fleiri Fréttir
Umsóknir
Siðareglur
Samningamál
Aðsendar greinar
Stjórn
Sagan
Nefndir
Lög FSSS
Hafðu samband
Myndir - félagsmenn
Lög, reglur & samþykktir
Drög af starfsreglum siðanefndar sjúkraþjálfara.
Umsóknir
Lög FSSS
Siðareglur FSSS
Samningur FSSS og Sjúkratrygginga
Lágmarksútb. á sjúkraþjálfunarst.

Alþingi, lagasafn

Samkomulag FSSS og SÍ 2012
Lög FSSS


 

Lög Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

1. gr. Staða og heiti

Félagið heitir Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, skammstafað FSSS. Lögheimili FSSS og varnarþing er í Reykjavík en starfssvæði þess er allt landið.

2. gr.Markmið FSSS

Markmið FSSS eru:

1.Að vinna að hagsmunamálum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara.

2.Að stuðla að hagnýtri umræðu og fræðslu fyrir sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara.

3.Að vinna að samskiptum við sambærilega hópa í öðrum löndum.


3. gr.
Félagar

Félagsmenn í FSSS geta verið löggiltir sjúkraþjálfarar með starfsleyfi á Íslandi sem starfa sjálfstætt á eigin stofum, í eigin rekstri eða á stofum sem reknar eru af öðrum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfurum.

Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn í FSSS sækja um það skriflega til stjórnar.

Heiðursfélagi getur sá orðið sem kjörinn er til þess af stjórn og skal kjöri hans lýst á aðalfundi.

Úrsögn úr FSSS skal vera skrifleg og send til stjórnar.

Brjóti félagsmaður gróflega gegn hagsmunum FSSS getur stjórn vikið honum úr félaginu eftir að hafa gefið félagsmanninum kost á að tjá sig um málið. Sá brottrekni getur vísað ákvörðun stjórnar til aðalfundar og er niðurstaða fundarins endanleg.

4. gr. Fjármál

4.1. Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi og greiðast í tvennu lagi, 15. apríl og 15. október ár hvert.Við vanskil reiknast hæstu leyfilegu dráttarvexti hverju sinni frá gjalddaga.

Reikningsár FSSS er almanaksárið.

Ársreikningar nýliðins árs skulu vera komnir í hendur skoðunarmanna reikninga félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund.

Ársreikningar skulu undirritaðir af stjórn og tveimur skoðunarmönnum reikninga og þannig lagðir fram á aðalfundi.

4.2. Heiðursfélagar, örorkulífeyrisþegar og félagar       eldri en 65 ára greiða ekki félagsgjald.

4.3. Félagi skal vera skuldlaus við FSSS þegar kemur að aðalfundi, að öðrum kosti skal honum vísað úr félaginu. Stjórn skal gera viðkomandi viðvart með eins mánaðar fyrirvara.

5. gr. Fundir

Aðalfund FSSS skal halda eigi síðar en í apríl ár hvert. Til hans skal boðað með tryggilegum hætti með minnst tveggja vikna fyrirvara.

Almenna félagsfundi skal stjórn boða til þegar hún telur ástæðu til. Til félagsfunda skal boða með a.m.k. þriggja daga fyrirvara

Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef fjórðungur félagsmanna óskar eftir því skriflega. Tilgreina skal fundarefnið þegar beiðni um félagsfund er sett fram. Almennur félagsfundur er ályktunarfær um boðuð dagskráratriði ef hann er löglega boðaður og tíundi hluti félagsmanna er mættur. Nú reynist félagsfundur ekki ályktunarfær vegna fámennis og skal stjórn þá innan viku boða til nýs félagsfundar með tveggja vikna fyrirvara. Sá fundur er ályktunarfær án tillits til fjölda fundarmanna, enda hafi þess verið getið í fundarboði, að ályktað yrði um tiltekið dagskráratriði frá fyrra fundi.

Stjórn er heimilt að halda fundi í félaginu á fleiri stöðum en einum í einu með fjarfundabúnaði.

6. gr. Aðalfundur

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum FSSS.

Rétt til setu á aðalfundi eiga félagsmenn sbr 4. gr. laga þessara.

Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi.

Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Stjórn gerir grein fyrir störfum FSSS.

Stjórn leggur fram ársreikninga FSSS til samþykktar. (skv 4. gr)

Lagabreytingar ef einhverjar eru.

Kosning stjórnar, sbr 8. gr.

Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

Ákvörðun félagsgjalds.

Kosning samninganefndar FSSS, sbr 9. gr laga þessara.

Kosning eins aðalsmanns og eins til vara í úrskurðarnefnd siðareglna.

Kosning þriggja aðalmanna og eins til vara í fagnefnd sbr 11. gr.

7. gr. Atkvæðagreiðsla

Atkvæðisrétt á aðalfundi og félagsfundum hafa félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið þegar aðalfundur eða félagsfundur er haldinn.

Atkvæði greidd á fjarfundi, sbr. 5. gr. laga þessara, teljast gild, enda sé á staðnum einn aðili sem ábyrgur er fyrir atkvæðagreiðslu og talningu.

Allar kosningar eru bindandi og skulu fara fram skriflega þegar fleiri en einn eru í kjöri. Falli atkvæði jafnt skal kosið að nýju. Fáist þá eigi úrslit ræður hlutkesti.

Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum máls nema annað sé tekið fram í lögum þessum.

8. gr. Stjórn félagsins

Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum er lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Kjörtímabil stjórnarmanna og varamanna er tvö ár. Formann skal kjósa sérstaklega og skal hann hljóta hreinan meirihluta greiddra atkvæða. Að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum og kýs varaformann, ritara og gjaldkera. Að jafnaði skal við það miðað að stjórnarmaður sitji ekki lengur samfellt en sex ár í stjórn í sama embætti.

Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og að jafnaði með viku fyrirvara. ef unnt er. Stjórnarfundi skal halda eins oft og formaður telur nauðsynlegt en þó eigi sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Ennfremur skal halda stjórnarfund ef meirihluti stjórnar óskar þess. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meirihluti stjórnar er mættur. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns (varaformanns úrslitum). Formaður stjórnar fundum og varaformaður í forföllum hans. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.

9. gr. Samningamál

Samninganefnd félagsins skipa 6 fulltrúar. Á aðalfundi skal kjósa 4 fulltrúa í samninganefnd og einn varamann. Stjórn skipar tvo fulltrúa í samninganefnd. Formaður samninganefndar skal vera úr stjórn FSSS.

Allir samningar skulu samþykktir af félagsmönnum í FSSS á almennum félagsfundi eða fjarfundi eða í póstatkvæðagreiðslu og staðfestir af stjórn félagsins.

Samningar teljast felldir í atkvæðagreiðslu ef meira en helmingur greiddra atkvæða er á móti. henni og ef mótatkvæði eru fleiri en fjórðungur atkvæða samkvæmt félagaskrá. Þetta gildir jafnt um atkvæðagreiðslu á félagsfundi með eða án fjarfundar og póstatkvæðagreiðslu.

10. gr.Úrskurðanefnd siðareglna

Heimilt er að beina kvörtunum vegna starfa félagsmanna til úrskurðarnefndar um brot gegn siðareglum félagsins. Kvörtun skal vera skrifleg. Frestur til þess að kvarta er sex mánuðir frá því að sú háttsemi eða atburðir sem um ræðir áttu sér stað.

Úrskurðarvald nefndarinnar tekur til þess að kveða á um það hvort félagsmaður hafi í starfi sínu brotið gegn ákvæðum siðareglnanna.

Nefndin skal skipuð þremur einstaklingum úr röðum félagsmanna. Á hverjum aðalfundi skal kjósa einn aðalmann og einn varamann til að taka sæti í nefndinni.

Nefndinni er heimilt að leita sér utanaðkomandi aðstoðar, svo sem aðstoðar lögmanns, við úrlausn einstakra mála.

Áður en úrskurðarnefndin kveður upp úrskurð í tilefni af kvörtun skjólstæðings er skylt að gera viðkomandi sjúkraþjálfara grein fyrir kvörtunarefninu og leita eftir athugasemdum hans.

Úrskurðir nefndarinnar skulu vera rökstuddir. Í rökstuðningi skal meðal annars rekja málavexti og kveða á um við hvaða ákvæði siðareglnanna og með hvaða hætti félagsmaður hafi gerst brotlegur.

11.gr. Fagnefnd

Nefndin skal skipuð þremur einstaklingum úr röðum félagsmanna. Á hverjum aðalfundi skal kjósa þrjá aðalmenn og einn til vara til að taka sæti í nefndinni.

Fagnefnd er umsagnaraðili um fagleg málefni í starfi sjúkraþjálfara.Nefndin starfar sem ráðgefandi aðili fyrir stjórn FSSS, nefndir félagsins og félagsmenn.Umsagnir fagnefndar skulu vera rökstuddar og skriflegar.

Fagnefnd setur sér starfsreglur sem skulu samþykktar af stjórn FSSS.

12. gr. Lagabreytinga

Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með samþykki a.m.k. 2/3 greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu vera skriflegar og sendar stjórn FSSS fyrir 1. febrúar ár hvert. Fram skal koma í aðalfundarboði að lagabreytingar verði á dagskrá fundarins og frá því sagt hvar félagsmenn geta nálgast tillögurnar.

Samþykkt á aðalfundi FSSS 8.mars  2008

 

FSSS | Engjavegi 6 104 Reykjav�k | S�mi: 553 1994 | Fax: 514 4001 | fsss@fsss.is