Helstu ástæður aukinna verkefna hjá sjúkraþjálfurum. Meðalfjöldi meðferða sjúkraþjálfara á hvern sjúkling hefur nánast ekkert breyst á sl. fimm árum. Sjúklingum hefur hins vegar fjölgað um 22%. Svokölluðum almennumsjúklingum hefur reyndar einungis fjölgað um 11%, en öryrkjum sem leita til sjúkraþjálfara hefur fjölgað um ríflega 40% og ellilífeyrisþegum um 30%. Alls hefur meðferðum sjúkraþjálfara fjölgað um 33% síðastliðin fimm ár (27% ef tekið er tillit til nýrra reglna um skráningu skoðunar). Meðaltaxti á sama tíma hefur hækkað um 37%, eða að jafnaði um 8,2% á ári. Verðskrá vegna almennrar stofumeðferðar hefur hækkað um 32%, eða að jafnaði um 7,2% á milli ára. Heildarkostnaður TR og sjúklinga vegnasjúkraþjálfunar hefur hækkað um tæplega 15% á ári eða 74% á síðastliðnum fimm árum. Kostnaðarþátttaka TR á móti hlut sjúklings hefur hækkað á tímabilinu og því nemur kostnaðarhækkun TR um 84%. Framangreindar tölur snúa einungis að sjúkratryggingasviði TR en slysatryggingar eru utan þeirra.
Helstu ástæður þess að fólk leitar í auknum mæli til sjúkraþjálfara eru nokkrar. Í fyrsta lagi beina læknar sjúklingum sínum í æ ríka mæli til sjúkraþjálfara. Í öðru lagi fer öldruðum og öryrkjum, sem oftar en aðrir þurfa á langtímameðferð að halda, hlutfallslega stöðugt fjölgandi. Í þriðja lagi hefur fjölgun barna með umönnunarmat aukið verkefni sjúkraþjálfara og svokölluðum almennum sjúklingum fjölgar, meðal annars vegna aukins hreyfingarleysis, tölvunotkunar, álags og breyttra vinnuaðferða. Athygli vekur að í þessum hópi eru konur umtalsvert fleiri en karlar, enda vinna þeirra í sívaxandi mælitengd tölvunotkun og tilheyrandi kyrrsetu.. Þá hefur breytt aldurssamsetning þjóðarinnar, fækkun legudaga á endurhæfingardeildum, fjölgun bæklunaraðgerða, tilfærsla íþróttaslysa undir sjúkratryggingadeild, aukin offita, auknar kröfur um bata og vellíðan o.fl. áhrif til aukinnar spurnar eftir sjúkraþjálfun. Síðast en ekki síst skal nefnt að þær kynslóðir sem um þessar mundir eru að eldast sætta sig ekki við krankleika án þess að meðferðarúrræðum sem virka sé beitt til hins ýtrasta.
Lesa má nánar um kjaramál FSSS í þessu yfirliti yfir stöðu og hlutverk sjúkraþjálfunar (pdf).
Til að geta lesið þetta viðhengi þarf Acrobat Reader forritið sem hægt er að sækja hér. 
|