Forsíða
| Veftré
Lög, reglur & samþykktir
Drög af starfsreglum siðanefndar sjúkraþjálfara.
Umsóknir
Lög FSSS
Siðareglur FSSS
Samningur FSSS og Sjúkratrygginga
Lágmarksútb. á sjúkraþjálfunarst.

Alþingi, lagasafn

Samkomulag FSSS og SÍ 2012
Áhugavert efni
Aðsendar greinar
Tilkynningar

06.07.2011

Úrslit í golfmóti sjúkraþjálfara

Golfmót sjúkraþjálfara var haldið á Setbergsvelli föstudaginn 10. júní sl. Alls tóku 35 manns þátt í mótinu.

 

Veitt voru nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins og gerði Oddný

Sigsteinsdóttir sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 5. braut. Aðrir sem

fengu nándarverðlaun voru þau Rannveig Laxdal Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á 2.

braut, 2,23 m., Þórir Ingólfsson Afl sjúkraþjálfun á 14. braut, 2.42 m.,

Harpa Sigurðardóttir LSH á 11. braut, 3.86 m. og á 8. braut Hulda Soffía

Hermannsdóttir Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði 3.43 m.

 

Úrslit mótsins voru síðan sem hér segir:

 

Besta skor hafði  Daði Laxdal  starfsmaður á plani í Sjúkraþjálfun

Reykjavíkur, 74 högg (38 punktar), en ekki er bæði hægt að vinna verðlaun

fyrir besta skor og punktakeppni.

 

Í karlaflokki var efstur í punktakeppni Gunnar Svanbergsson Eflingu Akureyri

á  34 pt, í öðru sæti Haraldur Sæmundsson Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði á 33

pt og í þriðja sæti var Gauti Grétarsson Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á  32 pt.

 

Í kvennaflokki var efst Hulda Hermannsdóttir Sjúkraþjálfaranum á 36 pt, í

öðru sæti var Anna Úrsula Gunnarsdóttir Sjúkraþjálfun Íslands á  35 pt og í

þriðja sæti var Jórunn Hafsteinsdóttir á 33 pt.

 

Þau sem voru í efstu sætunum fengu öll gjafabréf frá Hole in One ásamt

verðlaunapening, golfmeistari sjúkraþjálfara í karla og kvennaflokki fékk

þar að auki farandgrip til varðveislu.

 

Í liðakeppninni varð efst lið Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og fengu þau veglega

ostakörfu í verðlaun ásamt verðlaunagrip.

 

Í lok mótsins var síðan dregið úr skorkortum og líklega hafa allir

viðstaddir fengið einhvern vinning. Nokkrar sjúkraþjálfarastofur styrktu

mótið, þar má nefna Stjá, MT stofuna, Sjúkraþjálfun Kópavogs,

Sjúkraþjálfarann. Einnig fengum við styrk frá FÍSÞ og FSSS.

 

Við í undirbúningsnefdninni þökkum ykkur fyrir þátttökuna og vonum að við

sjáum enn fleiri þátttakendur á næsta ári.

golfmot2011a golfmot2011b golfmot2011c


« Til baka
 

FSSS | Engjavegi 6 104 Reykjav�k | S�mi: 553 1994 | Fax: 514 4001 | fsss@fsss.is