Forsíða / Um FSSS / Fleiri Fréttir
| Veftré
Fleiri Fréttir
Umsóknir
Siðareglur
Samningamál
Aðsendar greinar
Stjórn
Sagan
Nefndir
Lög FSSS
Hafðu samband
Myndir - félagsmenn
Lög, reglur & samþykktir
Drög af starfsreglum siðanefndar sjúkraþjálfara.
Umsóknir
Lög FSSS
Siðareglur FSSS
Samningur FSSS og Sjúkratrygginga
Lágmarksútb. á sjúkraþjálfunarst.

Alþingi, lagasafn

Samkomulag FSSS og SÍ 2012
Allar fréttir

30.12.2004

Meðferðir í sjúkraþjálfun skráðar í miðlægan gagnagrunn

Atlas, nýtt skráningarkerfi fyrir sjúkraþjálfara var tekið í notkun í apríl 2004. Þetta markaði tímamót í skráningum á á meðferðum sjúklinga í sjúkraþjálfun. Með þessu er kominn vísir að miðlægum gagnagrunni sem hægt verður að nota sem slíkan um leið og lög leyfa.

Stjórn Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara kynnti hugmyndina á bak við Atlas skráningarkerfið í upphafi og í kjölfarið gerðu 14 sjúkraþjálfunarstofur með sér samning um að nota kerfið.Umer að ræða mótun og samræmingu skráningar á sjúkratilfellum. Með breyttu lagaumhverfi er stefnt að gerð miðlægs gagnagrunns á þessu sviði. Hingað til hefur hver sjúkraþjálfunarstofnun leyst sín skráningarmál með ýmis konar sérlausnum, en þau gögn eru nánast öll á textaformi og því erfið til úrvinnslu. Með tilkomu Atlas kerfisins er slíkt úr sögunni og því um gríðarlega hagræðingu að ræða. Ekki er vitað til þess að sambærilegt kerfi sé notað innan sjúkraþjálfunar í öðrum löndum.

Kerfið byggir á:

  • Samræmdri sjúkraskráningu
  • Tímabókun
  • Greiðslukvittanakerfi

Við hönnun kerfisins var haft að leiðarljósi að kerfið yrði notendavænt, mótuð skráning vel flokkuð, auk þess sem farið var eftir kröfulýsingu heilbrigðisráðuneytisins um rafræna sjúkraskráningu. Þar sem kerfið heldur utan um heilsufarstengdar upplýsingar um einstaklinga eru strangar öryggiskröfur gerðar um aðgang að gögnum í kerfinu og aðeins þeir notendur sem hafa til þess sérlega heimild hljóta aðgang.

Upplýsingarnar geta nýst sjúkraþjálfurum vel sem grunnur fyrir vísindalegar rannsóknir og mun þannig stuðla að framförum í faginu. Þá kemur þetta viðskipavinum til góða því í grunninn má sækja upplýsingar um hvaða meðferð aðrir sjúkraþjálfarar eru að beita gegn ákveðnum kvilla.


« Til baka
 

FSSS | Engjavegi 6 104 Reykjav�k | S�mi: 553 1994 | Fax: 514 4001 | fsss@fsss.is